Eftirfarandi ljósmyndir úr tónlistarferli Eyþórs Þorlákssonar voru á sýningu í Hafnarborg
14. - 30 október 2000 í tilefni af 70 ára afmæli Eyþórs Þorlákssonar.
|
|
1) G. O. Quintet 1946-47. Á myndinni eru Ólafur Gaukur Þórhallsson (gítar), Guðmundur
Steingrímsson (trommur), Eyþór Þorláksson (kontrabassi), Gunnar Ormslev (altosax)
og Steinþór Steingrímsson (píanó). G. O. Quintetinn lék víða bæði í Góðtemplarahúsinu
í Hafnarfirði og samkomusal mjólkurstöðvarinnar í Reykjavík. Hljómsveitin lék á
dansæfingum hjá framhaldsskólunum á Reykjavíkursvæðinu.
|
|
2) Eyþór Þorláksson 1948 með Hawaii-kvartettinum sem kontrabassaleikari. Hawaii-kvartetinn
kom mikið fram sem skemmtiatriði á árshátíðum og einnig í revíum í Sjálfstæðishúsinu
á árunum 1948-1950, ýmist með eða án söngvara. Helstu söngvarar sem komu fram með
hljómsveitinni voru Haukur Morthens og Edda Skagfield.
|
|
3) Hawaii-kvartettinn 1948. Á myndinni eru Hilmar Skagfield (hawaii-gítar), Ólafur
Máríusson (gítar), Haukur Morthens (söngur), Eyþór Þorláksson (gítar) og Hallur
Símonarsson (kontrabassi).
|
|
4) Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar í Mjólkurstöðinni 1949. Á myndinni eru Hallur
Símonarson (kontrabassi), Eyþór Þorláksson (gítar), Bragi Einarsson (klarinett),
Guðmundur Steingrímsson (trommur) og Magnús Pétursson (píanó).
|
|
5) Hljómsveit Kristáns Kristjánssonar. Æft fyrir tónleika sennilega 1949. Á myndinni
eru: Guðmundur R. Einarsson (trommur), Eyþór Þorláksson (kontrabassi), Baldur Kristjánsson
(píanó), Skafti Sigþórsson (baritone sax), Björn R. Einarsson (básúna), Gunnar Ormslev
(tenor sax), Jónas Dagbjartson (trompet) og Kristján Kristjánsson (alto sax og stjórnandi).
|
|
6) Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar 1950. Á myndinni eru Svavar Gests (víbrafónn),
Bragi Einarsson (klarinett), Eyþór Þorláksson (gítar), Guðmundur Steingrímsson (trommur),
Hallur Símonarson (kontrabassa), og Magnús Pétursson (píanó)..
|
|
7) Hljómsveit Stefáns Þorleifssonar í Oddfellowhúsinu 1950. Á myndinni eru Stefán
Þorleifsson (tenor-sax), Helgi Gunnarsson (trompet), Eyþór Þorláksson (gítar), Guðmundur
Steingrímsson (trommur) og Guðjón Pálsson (píanó).
|
|
8) KK quintet í Oddfellowhúsinu 1952. Á myndinni eru Guðmundur Steingrímsson (trommur),
Gunnar Reynir Sveinsson (víbrafónn), Kristján Magnússson (píanó), Kristján Kristjánsson
(alto-sax) og Eyþór Þorláksson (gítar).
|
|
9) Stórsveit Kristjánsson sennilega 1953. Á myndinni eru:Saxar: Skafti Sigþórsson,
Sveinn Ólafsson, Vilhjálmur Guðjónsson, Gunnar Egilsson, Gunnar Ormslev og Kristján
Kristjánsson stjórnandi.
Trompetar: Karl Jónatansson, Ágúst Elíasson, Jón Sigurðsson og Jónas Dagbjartsson.
Aftari röð: Eyþór Þorláksson (gítar), Guðmundur R. Einarsson (trommur), Jón Sigurðsson
(bassi) og Magnús Pétursson (píanó). Básúnur: Halldór Einarsson, Björn R. Einarsson
og Þórarinn Óskarsson.
|
|
10) Jazz tríó 1954. Á myndinni eru Jón Sigurðsson (kontrabassi), Guðmundur Steingrímsson
(trommur) og Eyþór Þorláksson (gítar).
|
|
11) Jazz kvartett á tónleikum í Austurbæjarbíó 1954. Á myndinni eru Guðmundur Steingrímsson
(bongos), Eyþór Þorláksson (gítar), Guðni Guðnason (harmónikka) og Jón Sigurðsson
(bassi).
|
|
12) KK sextettinn á jazztónleikum í Chat Noir í Oslo 1954. Hljómsveitinn spilaði
á ýmsum stöðum í Oslo svo sem Penguin jazzklúbbnum, í Danmörku í Damhus Tívolí,
National Scala. Þrisvar sinnum lék hljómsveitin í danska útvarpið og komu fram í
þáttunum Lördags Mik og Lykke posen. Á myndinni eru Haukur Morthens (söngur), Gunnar
Reynir Sveinsson (víbrafónn), Kristján Kristjánsson (altósax), Eyþór Þorláksson
(gítar), Guðmundur Steingrímsson (trommur) og Kristján Magnússon (píanó).
|
|
13) KK sextett í Þýskalandi 1955. Á myndinni eru Kristján Magnússon (píanó), Gunnar
Reynir Sveinsson (víbrafónn), Kristján Kristjánsson (alto-sax), Sigrún Jónsdóttir
(söngkona), Guðmundur Steingrímsson (trommur), Eyþór Þorláksson (gítar) og Jón Sigurðsson
(kontrabassi).
|
|
14) KK sextettin í Þýskalandi 1955. Á myndinni eru: Árni Elfar (píanó), Gunnar Reynir
Sveinsson (víbrafónn), Kristján Kristjánsson (alto sax), Sigrún Jónsdóttir (söngkona),
Guðmundur Steingrímsson (trommur), Sigurbjörn Ingþórsson (bassi) og Eyþór Þorláksson
(gítar).
|
|
15) Orion Quintet í Þýskalandi 1956. Á myndinni eru Sigurður Guðmundsson (píanó),
Eyþór Þorláksson (gítar), Sigurbjörn Ingþórsson (kontrabassi), Ellý Vilhjálms (söngkona),
Andrés Ingólfsson (alto-sax) og Guðjón Ingi Sigurðsson (trommur). Hljómsveitin ferðaðist
um Þýskaland og Marokkó.
|
|
16) Orion Quintet í upptökusal RÚV með Hauki Morthens 1956. Á myndinni eru Sigurður
Guðmundsson (píanó), Andrés Ingólfsson (alto-sax), Sigurbjörn Ingþórsson (kontrabassi),
Guðjón Ingi Sigurðsson (trommur), Haukur Morthens (söngur) og Eyþór Þorláksson (gítar).
|
|
17) Orion á Hótel Kea 1957. Á þessari mynd eru Hjörleifur Björnsson (kontrabassi),
Gunnar Reynir Sveinsson (víbrafónn og slagverk), Andrés Ingólfsson (alto-sax), og
Eyþór Þorláksson (gítar). Hljómsveitin lék á Akureyri og víða um norður og austurland.
|
|
18) Orion Quintet í Breiðfirðingabúð 1957. Á myndinni eru Hjörleifur Björnsson (kontrabassi),
Þórir Roff (trommur), Ellý Vilhjálms (söngkona), Eyþór Þorláksson (gítar), Sigurður
Guðmundsson (píanó) og Andrés Ingólfsson (alto-sax).
|
|
19) Graciano Tarragó, kennari Eyþórs í Barcelona á árunum 1958 - 1965. Tarragó var
prófesor við Conservatorio de Liceo í Barcelona og lék einnig á víólu með sinfóníuhljómsveit
Barcelona. Hann skrifaði mikið af verkum og kennslubókum fyrir gítar og einnig kennslubók
fyrir víólu. Hann ferðaðist mikið um Spán og víðar við tónleikahald. Dóttir hans
Renata Tarragó er þekktur gítarleikari og hefur gefið út margar hljómplötur.
|
|
20) Eyþór við æfingar í Barcelona á Calle America 1958. Eyþór stundaði nám hjá Tarragó
á árunum 1958 - 1959 og einnig af og til fram til ársins 1966. Í Barcelona bjó Eyþór
á heimili Juan Jose Belles hljóðfæraleikara og léku þeir saman í hljómsveit Jose
Matas.
|
|
21) Hljómsveit Jose Matas á Hostal de la Gavina í S'Agaró á Costa Brava 1958. Þarna
var leikið yfir sumartímann. Klúbburinn hét Club de Garbi og var staðsettur í garði
Hostal de la Gavina sem er fimm stjörnu luxus hótel. Á myndinni eru Enrique Cifuentes
(kontrabassi), Jose Matas (víbrafónn), Juan Torres (fiðla), Eyþór Þorláksson (gítar)
og Juan Jose Belles (trommur).
|
|
22) Hljómsveit Jose Matas 1959, Embassy Club Barcelona. Meðlimir hljómsveitarinar
voru Jose Matas (píanó), Enrique Cifuentes (kontrabassi), Jose Farreras (trommur),
Juan Torres (fiðla og söngur) og Eyþór Þorláksson (gítar).
|
|
23) Ljósmynd af Eyþóri eftir Jón K. Sæmundsson 1960. Á þessum árum lék Eyþór víða
á skemmtunum og tónleikum, einnig í kaffitíma Sjálfstæðishúsins við Austurvöll.
|
|
24) Eyþór á tónleikum í Austurbæjarbíó 1960. Á þessum tíma lék Eyþór í hljómsveit
Svavars Gests í Sjálfstæðishúsinu og hélt hljómsveitinn marga tónleika og skemmtanir
einnig stóð hljómsveitin fyrir útvarpsþáttunum Nefndu lagið sem Svavar Gests stjórnaði.
Á sumrin ferðaðist hljómsveitin um landið og hélt skemmtanir og dansleiki.
|
|
25) Hljómsveit Svavars Gests á tónleikaröð í Austurbæjarbíó með Deep River Boys
1960. Á myndinni eru: Sigurður Guðmundsson (píanó), Eyþór Þorláksson (gítar), Svavar
Gests (trommur), Reynir Jónasson (tenor sax og harmónikka) og Hrafn Pálsson (bassi),
ásamt Deep River boys.
|
|
26) Hljómsveit Svavars Gests í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll (1960). Á myndinni
eru: Gunnar Pálsson (bassi), Sigurður Guðmundsson (píanó), Svavar Gests (trommur),
Reynir Jónasson (tenor sax og harmónikka), Sigurdór Sigurdórsson (söngur) og Eyþór
Þorláksson (gítar).
|
|
27) Hljómsveit Svavars Gests á tónleikum í Austurbæjarbíó 1960. Á myndinni eru:
Reynir Jónasson (tenor sax og harmónikka), Sigurður Guðmundsson (píanó), Eyþór Þorláksson
(gítar), Svavar Gests (trommur), Sigurdór Sigurdórsson (söngur) og Gunnar Pálsson
(bassi).
|
|
28) Úr revíunni Eitt lauf undir stjórn Gunnars Eyjólfssonar sem sýnd var í Sjálfstæðishúsinu
við Austurvöll 1961-62. Á myndinni eru: Sigurdór Sigurdórsson, Anna María Jóhannsdóttir,
Eyþór Þorláksson, Sigrún Hjálmarsdóttir, Didda Sveins, Tryggvi Karlsson og Reynir
Jónasson.
|
|
29) Úr revíunni Eitt lauf undir stjórn Gunnars Eyjólfssonar sem sýnd var í Sjálfstæðishúsinu
við Austurvöll 1961-62. Á myndinni eru: Eyþór Þorláksson, Didda Sveins, Anna María
Jóhannsdóttir og Sigrún Hjálmarsdóttir.
|
|
30) Orquesta de Monfort, Night Club Cactus, Puerto de Pollenza, Mallorca sumarið
1961. Á myndinni eru Ramón Coll de Monfort (píanó), Amadeo Martorell (trommur),
Didda Sveins "Silvia" (söngkona), Eyþór Þorláksson (gítar), Juan Ramis (alto-sax)
og Baltasar Pocoví (kontrabassi).
|
|
31) Hljómsveit Ramón Coll de Monfort, Night Club Cactus, Puerto de Pollenza sumarið
1961. Á myndinni eru Eyþór Þorláksson, Juan Ramis, Baltasar Pocoví, Amadeo Martorell
og Didda Sveins "Silvia".
|
|
32) Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar í Leikhúskjallaranum veturinn 1961. Á myndinni
eru Trausti Thorberg (rafbassi), Didda Sveins (söngkona), Sigurður Guðmundsson (píanó)
og Eyþór Þorláksson (gítar). Hljómsveitin lék flest kvöld vikunar allan veturinn.
|
|
33) Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar í Paguera á Mallorca sumarið 1962. Á myndinni
eru Eyþór Þorláksson (gítar), Jorge Busquets (trommur), Didda Sveins (söngkona),
Juan Ramis (alto-sax), Baltasar Pocoví (kontrabassi) og Ramón Ramis (píanó).
|
|
34) Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar í Paguera á Mallorca sumarið 1962. Á myndinni
eru Ramón Ramis (píanó), Baltasar Pocoví (kontrabassi), Eyþór Þorláksson (gítar),
Didda Sveins "Silvia" (söngkona), Juan Ramis (píanó) of Jorge Busquets (alto-sax).
|
|
35) Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar í Leikhúskjallaranum veturinn 1962. Meðlimir
hljómsveitarinar voru Sigurður Guðmundsson (píanó), Eyþór Þorláksson (gítar), Didda
Sveins (söngkona) og Trausti Thorberg (rafbassi). Hljómsveitin lék fyrir leikhúsgesti
og á árshátiðum.
|
|
36) Eyþórs Combo á Röðli 1963. Hljómsveitina skipuðu Trausti Thorberg (rafbassi),
Sigurður Guðmundsson (píanó), Didda Sveins (söngkona), Sverrir Garðarsson (trommur)
og Eyþór Þorláksson (gítar). Hljómsveitin lék alla daga vikunnar nema miðvikudaga
en vínveitingar voru ekki leyfðar á miðvikudögum á þessum tíma og voru þeir því
kallaðir þurrir dagar.
|
|
37) Eyþórs Combo á Röðli veturinn 1964. Á myndinni eru Guðjón Pálsson (píanó), Sigurdór
Sigurdórsson (söngur), Eyþór Þorláksson (gítar), Trausti Thorberg (rafbassi) og
Sverrir Garðarsson (trommur).
|
|
38) Hljómsveit Jaime Ballester á Hótel Comodoro í Palma Nova á Mallorca sumarið
1964. Á myndinni eru Juan Coll (trommur), Didda Sveins "Silvia" (söngkona), Eyþór
Þorláksson (gítar) og Jaime Ballester (píanó).
|
|
39) Eyþórs Combo á Röðli 1965. Á myndinni eru Sverrir Garðarsson (trommur), Sverrir
Sveinsson (rafbassi), Didda Sveins (söngkona), Þórarinn Ólafsson (píanó) og Eyþór
Þorláksson (gítar).
|
|
40) Hljómsveit Pedro Sanchez á Títos, Palma de Mallorca mars - nóvember 1966, Didda
Sveins "Silvia" (söngkona), Eyþór Þorláksson (gítar), Pinillo (kontrabassi), Amadeo
(trommur), Andrés (píanó), Enrique (trompet) og Pedro Sanchez (alto-sax og hljómsveitarstjóri).
|
|
41) Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar 1966, Eyþór Þorláksson (gítar), Didda Sveins
(söngkona), Sverrir Sveinsson (rafbassi) og Sverrir Garðarsson (trommur).
|
|
42) Tónleikar á Keflavíkurvelli 1966, Sverrir Sveinsson (rafbassi), Sverrir Garðarsson
(trommur), Didda Sveins (söngkona og gítar) og Eyþór Þorláksson (gítar).
|
|
43) Hljómsveit Hauks Morthens í Kínverska garðinum 1969. Á myndinni eru: Sverrir
Sveinsson (bassi), Eyþór Þorláksson (gítar), Haukur Morthens (söngur) og Guðni Þ.
Guðmundsson (hammond orgel).
|
|
44) Hljómsveit Hauks Morthens í Átthagasal Hotel Sögu (ártal óvíst). Á myndinni
eru: Sverrir Sveinsson (bassi), Guðmundur Emilsson (hammond orgel), Haukur Morthens
(söngur) og Eyþór Þorláksson (gítar).
|
|
45) Hljómsveit Hauks Morthens á Hótel Sögu 1970. Á myndinni eru Guðmundur Emilsson
(píanó), Haukur Morthens (söngur), Gunnar Ormslev (alto-sax), Eyþór Þorláksson (gítar),
Sverrir Sveinsson (rafbassi) og Stefán Jökull (trommur).
|
|
46) Trausti Thorberg (gítar) og Eyþór Þorláksson (gítar) í Ölver Glæsibæ á dögum
bjórlíkisins 1984. Á þessum tíma lék Eyþór með ýmsum tónlistarmönnum á ölkrám og
smærri veitingastöðum, t.d. á Fógetanum og Gauk á stöng.
|
|
47) Tónleikar á vegum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar í samvinnu við Hafnarborg 1990.
Á myndinni eru Eyþór Þorláksson, Trausti Thorberg og Sveinn Eyþórsson.
|
|
48) Hótel Saga 1994, Minningartónleikar um Hauk Morthens, Sveinn Eyþórsson og Eyþór
Þorláksson.
|